fimmtudagur, janúar 18, 2007

Startfundur

Átakið okkar þreyjum þorrann og góuna hefst eftir 21 klst. og 53 mínútur.
Þátttakendur í þessu átaki eru nú orðnir 13 sem ætla að segja markaðsöflunum stríð á hendur, en allir eru velkomnir og ekki of seint að byrja.
Á morgun, bóndadaginn ætlum við að hittast á kennarastofunni kl. 12:35 og starta átakinu með spjalli, léttum veitingum og peppi.
Nú eru síðustu forvöð að kaupa einhvern óþarfa, eins og t.d. flatskjá!

f.h. Þorra og Góu

Viggi og Rúna Björg

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Náði að kíkja í Kringluna á útsölurnar í gær fimmtudag og eyða smá í nýjar vörur. Hjúkk!
Flatskjárinn bíður betri tíma...eða þannig sko.
Til hamingju með daginn allir strákar.
Ég og mín fjölskylda liggur öll í pest og volæði.
Kveðja
Dagný litla