"Við erum eins og sandkornin í Jöklu, eins og dropinn sem holar steininn, eins og ryð á járni.
Við erum maurar. Maurar sem gæða sér á brauðfótum kapítalismans. Óristað og án smjörs." Leifur Leifsson
fimmtudagur, apríl 12, 2007
Bónustaskan
Bónustaskan hefur fengið sitt hlutverk. Nokkrir kennarar úr Laugarnesskólanum fóru á fund Jóhannesar í Bónus og afhentu honum töskuna góðu að gjöf. Við þökkum Jóhannesi fyrir hlýjar móttökur og vonum að taskan komi í góðar þarfir.
hópur sem strengir þess heit að fara í verslunarbann - frá því þorrinn byrjar og þar til góunni lýkur.
Tilgangurinn er að segja markaðsöflunum stríð á hendur, gerast umhverfisvænni, spara peninga og draga úr "hlutaveiki og græðgisvæðingu".
Við kaupum mat, hreinlætisvörur, lyf og öryggisvörur. Annað kaupum við NOTAÐ eða fáum á skiptimörkuðum.
Netfang hópsins er: thorrioggoa@yahoo.com
Sáttmálinn
Drögum úr myndun sorps, drögum úr eftirspurn nýrra hluta.
Endurnýtum það sem við eigum eða kaupum notað.
Gerum við, breytum og bætum það sem er gamlt og þreytt.
23. - 29. apríl ... Sjónvarpslaus vika Í sjö daga segjum við nei við endalausum skilaboðum markaðsaflanna og sleppum því að horfa á sjónvarp í viku.
14. - 22. apríl ... "Þeir sem bara borða kjöt og bjúgu alla daga. Þeir feitir verða og flón af því og fá svo illt í maga ..." Nú gerumst við grænmetisætur í eina viku. Heitum því að sleppa a.m.k. öllu rauðu kjöti.
25. mars - 1. apríl ... Heilsuátakið að komast í gömlu fötin! Þessa viku heitum við því að borða bara hollan og góðan mat. Fimm skammta af grænmeti og ávöxtum á dag, minni sykur, engan skyndibita og svo annað það sem hver og einn telur hollt og gott.
4 ummæli:
Glæsilegt !!!
Flott hjá ykkur!
Nú getur karlinn mætt í réttinn með skjölin í bónustösku í stað bónuspoka.
Kveðja frá Helenarsystur.
HA HA HA HA!!!!!
kv.
RLP
PS! Flott greinin í Gróandanum.
kv.
Ragga
Skrifa ummæli