"Við erum eins og sandkornin í Jöklu, eins og dropinn sem holar steininn, eins og ryð á járni.
Við erum maurar. Maurar sem gæða sér á brauðfótum kapítalismans. Óristað og án smjörs." Leifur Leifsson
mánudagur, desember 17, 2007
Jólakrans úr hvítum plastpokum
Rakst á þetta hjá Tiu Bennet Nánari leiðbeiningar er svo að finna hérna.
Hvenær ætlar ÞogG að fara að hittast ? Yfir föndri úr ókeypis efni eða jólatei á Selfossi ?
Töff! Já það væri gaman að hittast annað hvort til að föndra eða drekka te á Selfossi. Ætli það veði nokkuð fyrr en á nýju ári? Hafið það gott um hátíðitnar, munið að endurnýta! Rúna Björg
Frábær hugmynd. Við verðum bara að fara að ákveða hvar og hvenær við hittumst. ég er sko alveg til.
Um daginn fann ég frábæra síðu tengda sjónvarpsstöð og hér er góð leið til að endurnýta gúmmístígvél: http://svenska.yle.fi/matochfritid/hobbyartikel.php?id=1831
hópur sem strengir þess heit að fara í verslunarbann - frá því þorrinn byrjar og þar til góunni lýkur.
Tilgangurinn er að segja markaðsöflunum stríð á hendur, gerast umhverfisvænni, spara peninga og draga úr "hlutaveiki og græðgisvæðingu".
Við kaupum mat, hreinlætisvörur, lyf og öryggisvörur. Annað kaupum við NOTAÐ eða fáum á skiptimörkuðum.
Netfang hópsins er: thorrioggoa@yahoo.com
Sáttmálinn
Drögum úr myndun sorps, drögum úr eftirspurn nýrra hluta.
Endurnýtum það sem við eigum eða kaupum notað.
Gerum við, breytum og bætum það sem er gamlt og þreytt.
23. - 29. apríl ... Sjónvarpslaus vika Í sjö daga segjum við nei við endalausum skilaboðum markaðsaflanna og sleppum því að horfa á sjónvarp í viku.
14. - 22. apríl ... "Þeir sem bara borða kjöt og bjúgu alla daga. Þeir feitir verða og flón af því og fá svo illt í maga ..." Nú gerumst við grænmetisætur í eina viku. Heitum því að sleppa a.m.k. öllu rauðu kjöti.
25. mars - 1. apríl ... Heilsuátakið að komast í gömlu fötin! Þessa viku heitum við því að borða bara hollan og góðan mat. Fimm skammta af grænmeti og ávöxtum á dag, minni sykur, engan skyndibita og svo annað það sem hver og einn telur hollt og gott.
2 ummæli:
Töff!
Já það væri gaman að hittast annað hvort til að föndra eða drekka te á Selfossi. Ætli það veði nokkuð fyrr en á nýju ári?
Hafið það gott um hátíðitnar, munið að endurnýta!
Rúna Björg
Frábær hugmynd.
Við verðum bara að fara að ákveða hvar og hvenær við hittumst. ég er sko alveg til.
Um daginn fann ég frábæra síðu tengda sjónvarpsstöð og hér er góð leið til að endurnýta gúmmístígvél: http://svenska.yle.fi/matochfritid/hobbyartikel.php?id=1831
Jólakveðja
Helen Sím.
Skrifa ummæli